Fimmtán hrefnur á land 24. júlí 2005 00:01 "
Það voru afar góð skilyrði fyrir veiðar um helgina og það veiddust fjórar hrefnur," segir Gunnar Bergmann Jónsson hjá Félagi hrefnuveiðimanna. Alls hafa því veiðst fimmtán dýr af þrjátíu og níu dýra hrefnuveiðikvóta en veiðar standa yfir í vísindaskyni til 15. ágúst. Hrefnunum er landað víða um landið en í dag verður tveimur landað á Norðfirði. Gunnar segir að hrefnukjötið komi í verslanir eftir hádegi í dag en í síðustu viku seldist allt hrefnukjöt upp og verður því unnið hörðum höndum við að verka dýrin og koma kjötinu í verslanir. "Þetta verður selt í sömu verslunum og áður og viðtökur hafa verið frábærar eins og áður hefur komið fram. Við erum því ánægðir að geta boðið landsmönnum upp á þetta kjöt sem er góður matur hvort sem er á grillið eða matreitt með öðrum hætti. Við reynum að klára kvótann áður en hrefnuveiðitímabilið er á enda því það er ljóst að það er eftirspurn hjá landsmönnum eftir hrefnukjöti," segir Gunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Loftgæði mælast óholl á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Sjá meira