Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar: Heimildamynd ársins

RITHÖFUNDUR MEÐ MYNDAVÉL eftir Helgu BrekkanÓvenju vel unnin mynd um óvenjulegan mann. Myndum Guðbergs sjálfs frá Grindavík, Spáni og Portúgal er listilega fléttað saman við frásagnir hans og skáldskap; hið hversdagslega og hið skáldlega renna áreynslulaust í eitt og mynda sterka heild.

Myndin byggir á súper 8 kvikmyndum sem rithöfundurinn Guðbergur Bergsson tók á Spáni, Portúgal, Azor eyjum og á Íslandi á sjöunda áratugnum en í myndinni sjáum við að rætur hans eru í Grindavík þar sem hann ólst upp. Segja má að myndin sé óformleg sjálfsævisaga Guðbergs.

FRAMLEIÐANDI: Hrönn Kristinsdóttir

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI/HANDRIT: Helga Brekkan

RAGNAR Í SMÁRA eftir Guðnýju HalldórsdótturHér tekst sérstaklega vel til með samspil eldra myndefnis, viðtala og leikinna atriða.

Rauður þráður myndarinnar, jeppinn hans Ragnars, er snjöll lausn á framvindu sögunnar og myndin dregur upp skemmtilega og skýra mynd af þessum einstaka manni.

FRAMLEIÐANDI: Halldór Þorgeirsson

LEIKSTJÓRI: Guðný Halldórsdóttir

HANDRIT: Sigurður Valgeirsson

AFRICA UNITED eftir Ólaf JóhannessonSkemmtileg mynd um fótboltalið í þriðju deild. Fjölbreytt persónugalleríið lifnar á tjaldinu og ástríða þjálfarans og leikmannanna smitar áhorfandann. Myndin er vel unnin á allan hátt og sagan gengur upp í lok myndarinnar.

FRAMLEIÐANDI: Ragnar Santos, Benedikt Jóhannesson, Ólafur Jóhannesson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Ólafur Jóhannesson

HANDRIT: Ólafur Jóhannesson

UNDIR STJÖRNUHIMNI. eftir Helga Felixson og Titti Johnson.Myndin um Friedu Darvel er gerð með óvenjulegri næmni fyrir viðfangsefninu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður er myndatökumaðurinn sífellt vakandi fyrir því sem gerist og tekst að fanga augnablikið sem öllu skiptir um leið og merkja má að höfundarnir njóta fullst trausts þeirra sem um er fjallað.

FRAMLEIÐANDI: Helgi Felixsson/Hrönn Kristinsdóttir

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Helgi Felixson/Titti Johnson

HANDRIT: Titti Johnson

GARGANDI SNILLD eftir Ara AlexanderHér er tónlistin í forgrunni og verður eins og einn þátttakenda í samræðum við listamennina sjálfa sem lýsa ólíkum viðhorfum sínum til tónlistarsköpunar. Afar vönduð tæknivinna á öllum sviðum einkennir myndina.

FRAMLEIÐANDI: Palomar Pictures / Zik Zak kvikmyndir

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI/HANDRIT: Ari Alexander Ergis Magnússon








Fleiri fréttir

Sjá meira


×