Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar: Handrit ársins

Ólafur Jóhannesson (Africa United)Africa United

"Skemmtilegt og vel uppbyggt handrit með sterkum og áhugaverðum persónum. Höfundur notar frásagnartækni leikinnar kvikmyndar og ferst það einkar vel úr hendi. Þrátt fyrir að vera með margar aðalpersónur nær hann að skapa sögu heildarinnar"

FRAMLEIÐANDI: Ragnar Santos, Benedikt Jóhannesson, Ólafur Jóhannesson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Ólafur Jóhannesson

HANDRIT: Ólafur Jóhannesson

Dagur Kári Pétursson & Rune Schött (Voksne Mennesker)Voksne Mennesker

"Handritið er stútfullt af óborganlegum senum og hugmyndum sem bæta upp fyrir brotakenndan söguþráðinn. Vel skrifuð og á köflum drepfyndin samtöl. Höfundarnar vinna markvisst með efniviðinn svo úr verður sterk saga sögð með áreynslulitlum og skemmtilegum hætti."

FRAMLEIÐANDI: Nimbus Film / co-prod. Zik Zak

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Dagur Kári

HANDRIT: Dagur Kári & Rune Schjott

Mark Valenti, Magnús Scheving og Máni SvavarssonLatibær

"Höfundarnir hafa náð á sérstaklega kraftmikin hátt að innstilla sig á tempó nútímabarna, með sögum sem hafa mikið erindi, einföldum en lifandi persónum sem hver og ein hefur skýr markmið. Allt hjálpast að til að gera Latabæ að einu besta efni fyrir börn sem gert hefur verið á Íslandi og þó víðar væri leitað."

FRAMLEIÐANDI: Latibær ehf

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Magnús Scheving, Jonathan Judge

HANDRIT: Mark Valenti, Magnús Scheving






Fleiri fréttir

Sjá meira


×