Sinntu ekki rannsókninni 23. september 2005 00:01
Rannsókn á hópnauðgun konu í ágúst 2002 var ýtt til hliðar vegna alvarlegrar líkamsárásar sem upp kom sömu helgi. Þetta kemur fram í skýringum lögreglu í Reykjavík til Ríkissaksóknara eftir að verjandi konunnar hafði óskað eftir frekari upplýsingum um rannsóknina. Konan höfðaði sjálf mál á hendur mönnunum eftir að ríkissaksóknari ákvað að falla frá saksókn og tveir dómsmálaráðherrar höfðu neitað að liðsinna henni. Þó að Hæstiréttur telji það sannað að mennirnir hafi brotið á konunni, þá sæta þeir ekki refsingu vegna glæpsins, og mun hann ekki koma fram á sakaskrám þeirra. "En ég held þeir hljóti að vera sakbitnir og sektin mun vera eins og hlekkir um háls þeirra alla þeirra ævi. Þetta mál mun fylgja þeim þó það hafi verið einkamál," segir Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður, verjandi konunnar. "Þetta mál segir manni að kynfrelsi íslenskra kvenna nýtur ekki réttarverndar innan íslenska réttarvörslukerfisins. Það er verið að rústa líf þessara kvenna sem eru fórnarlömb kynferðisafbrotamanna, og réttarvörslukerfið virðist ekki gera sér grein fyrir þessu." Konan bar vitni um að í ágúst 2002 hefði hún kynnst mönnunum þremur á skemmtistað í Reykjavík og farið með þeim í íbúð í Breiðholti í þeirri trú að fleira fólk væri á leið í samkvæmið. Rétturinn heyrði hvernig einn mannanna, sem konan sagðist óttast, hafði frumkvæði að mökum við konuna gegn vilja hennar og kallaði svo á hina tvo. Allir þrír höfðu þeir síðan mök við konuna hver á eftir öðrum og samtímis. Hún leitaði hjálpar hjá neyðarlínunni sömu nótt og kærði nauðgunina í framhaldi af því. Í ársbyrjun 2003 ákvað ríkissaksóknari að falla frá saksókn á hendur mönnunum vegna skorts á sönnunargögnum. Lögmenn konunnar öfluðu nýrra gagna í tvígang og fóru með til saksóknara, en í bæði skiptin neituðu yfirvöld að taka málið upp aftur, segir Atli. Í september 2003 bað lögmaður konunnar dómsmálaráðherra um að niðurfelling saksóknarinnar yrði felld úr gildi, en Björn Bjarnason ráðherra hafnaði því. Áður segist konan hafa farið sjálf til Sólveigar Pétursdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, en ekki fengið neina aðstoð við málið. "Hún kom alls staðar að lokuðum dyrum," segir Atli. Konan stefndi því mönnunum og töldu bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur nægar sannanir vera fyrir því að mennirnir hefðu brotið gegn frelsi og persónu konunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira