Innlent

Umferð á næstunni um Svínahraun

Nýi vegurinn um Svínahraun verður opnaður fyrir umferð á næstu dögum. Vonast er til að um helgina takist að ljúka malbikun en hún hefur tafist vegna kulda síðustu daga. Með þessum fimm kílómetra langa kafla styttist hringvegurinn um tæpan kílómetra, tvær hættulegar beygjur hverfa og ný Þorlákshafnargatnamót verða mislæg. Þá eykst umferðaröryggi einnig við það að vegurinn verður þriggja akreina og munu víraleiðarar skilja að akstursstefnur. KNH-verktakar unnu verkið sem kosta mun rúmlega fjögurhundruð milljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×