Verklagsreglur vegna hermannaveiki 22. september 2005 00:01
Umhverfisráð Reykjavíkurborgar hyggst setja verklagsreglur til að koma í veg fyrir útbreiðslu hermannaveiki, að sögn Katrínar Jakobsdóttur varaformanns ráðsins. Á nýafstöðnum fundi ráðsins var farið yfir stöðu hermannaveiki hér á landi. Tilefnið var síðasta tilfelli veikinnar sem kom upp í ágúst. Þá reyndist vera baktería, sem veldur hermannaveiki, í sýni sem tekið var úr vaski á vinnustað í Reykjavík. Rekstraraðili stofunnar sem er eini starfsmaðurinn veiktist alvarlega af hermannaveiki. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem heilbrigðiseftirlitinu tekst að rækta hermannaveikibakteríu sem greind er af sömu tegund í umhverfi sjúklings og ræktast hafði úr honum. Maðurinn var að mæta til vinnu eftir alllangt hlé þegar hann sýktist. Er talið að veiran hafi leynst í rörum eða krana, þar sem vatn hafði ekki verið notað um hríð. "Því var velt upp hvort við ættum ekki að athuga reglur hér og þar í heiminum, þar sem fyrirskipuð er útskolun úr vatnsleiðslum í skólum og leikskólum eftir jólafrí og sumarfrí, svo dæmi séu tekin," segir Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. "Verkefni okkar á umhverfissviði er að koma með tilögur um reglur eftir að hafa athugað hvernig systursamtök okkar á Norðurlöndunum taka á þessum málum. Þá eru ákveðnar vísbendingar frá Bretlandi um hvernig menn haga sér gagnvart hermannaveiki. Við munum safna þessum upplýsingum saman og málið verður síðan tekið fyrir aftur í umhverfisráði, væntanlega seint á þessu ári. Þá verður lögð fram tillaga, greinargerð og rökstuðningur um viðbrögð umhverfissviðs." Örn segir að þegar komi upp grunur um hermannaveiki sé umhverfissvið í samvinnu við sóttvarnarlækni landlæknisembættisins um sýnatöku, þar sem reynt er að grafast fyrir um upptök veikinnar. Katrín Jakobsdóttir segir að reglurnar verði kynntar fyrirtækjum og stofnunum þar sem hætta sé á að bakterían geti leynst í krönum og blöndunartækjum eftir starfshlé. Hermannaveikin
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira