Innlent

Miklar endurbætur á Alþingishúsinu

Umfangsmiklar endurbætur hafa staðið yfir á Alþingishúsinu síðastliðin tvö ár og nú sér brátt fyrir endann á þeim. Ákveðið var árið 2002 að ráðast í endurbæturnar en engar engar heildstæðar viðgerðir höfðu þá verið gerðar á húsinu frá því það var byggt árið 1881. Framkvæmdunum var skipt í nokkra áfanga enda einungis hægt að vinna að þeim að sumarlagi meðan hlé er á þingstörfum. Sumarið 2003 var gert við suður- og austurhlið hússins að utan og anddyri þess endurgert og sumarið eftir var unnið að endurbótum og viðgerðum innanhúss á 1. og 2. hæð og voru m.a. gólfplötur í herbergjum 1. hæðar brotnar upp, skipt um jarðveg og gólfin steypt á ný enda höfðu komið í ljós verulegar rakaskemmdir í gólfum. Í sumar hefur svo viðgerðum verið haldið áfram, einkum á 1. og 3. hæð. Lyfta var sett í húsið svo að nú eiga fatlaðir greiðan aðgang að þingpöllum. Hins vegar er viðgerðum á norður- og vesturhlið hússins og á þaki ólokið auk þess sem eftir á að endurgera loftræstikerfi hússins. Ákveðið var að færa húsið að innan sem næst upprunalegu horfi og margvíslegar endurbætur gerðar á veggjum og loftum, meðal annars voru lagfærðar skemmdir eftir jarðskjálfta í suðvesturhluta hússins. Að loknum endurbótum á að velja ný húsgögn í Alþingishúsið. Heildarkostnaður við endurgerð og viðgerðir á Alþingishúsinu er um 285 milljónir króna og kostnaður við viðgerðir sem enn er ólokið utanhúss og við loftræstikerfi og endurnýjun húsgagna er áætlaður um 100 milljónir króna. Alþingishúsið og Skálinn verða almenningi til sýnis næstkomandi laugardag frá kl. 10 til kl. 15 og verður gengið inn um aðaldyr Skálans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×