50 milljónir í umsóknina 17. október 2005 23:43
Alþingi hefur að minnsta kosti fimm undanfarin ár fjallað um og samþykkt aukin framlög til fastanefndar Íslands í New York vegna framboðs til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Árið 2001 samþykkti Alþingi fjórtán milljóna króna framlag vegna viðbótarstarfsmanns hjá fastanefndinni í New York. Í fjárlögum þess árs segir að stefnt sé að því að Ísland taki sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 og 2010 og því þurfi "að byggja starfsemi fastanefndarinnar upp jafnt og þétt á næstu árum". Árið 2003 samþykkti Alþingi níu milljóna króna framlag fyrir nýtt stöðugildi hjá fastanefndinni vegna fyrirhugaðs framboðs til öryggisráðsins. Á fjárlögum 2004 var gert ráð fyrir tuttugu milljóna króna framlagi til fastanefndarinnar í New York vegna sérfræðikostnaðar og ritara. Framlagið er beinlínis tengt auknum umsvifum nefndarinnar í tengslum við fyrirhugað framboð Íslands til öryggisráðsins. Á fjárlögum þessa árs var samþykkt fimm milljóna króna fjárveiting til að fjölga um einn fulltrúa á alþjóðaskrifstofu. "Þörf er á að efla verulega þátttöku Íslands í starfsemi SÞ vegna fyrirhugaðs framboðs Íslands til öryggisráðsins haustið 2008. Gera má ráð fyrir að kostnaður af einu stöðugildi nemi um átta milljónum króna og mun þessi fjárveiting fjármagna stöðuna að hluta," eins og segir orðrétt í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu. Fjárveitingar til fastanefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum í New York hafa hækkað úr um 86 milljónum á fjárlögum árið 2000 í tæplega 200 milljónir króna á þessu ári. Samanlagt hafa á þessu tímabili 48 milljónir verið merktar sérstaklega umsókn um sæti í öryggisráðinu. Eftir því sem næst verður komist hafa stjórnarliðar í þingflokkum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem nú hafa gert athugasemdir við framboðið eða lýst andstöðu við það, ekki greitt atkvæði gegn þessum fjárveitingum.
Fréttir Innlent Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira