Eina landleið Bolvíkinga 17. október 2005 23:43
Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman til fundar í dag vegna grjóthruns úr Óshlíð niður á þjóðveginn um helgina og vegna þess að hrun virðist vera að aukast úr hlíðinni. Sýslumaður þeirra minnir á að þetta sé eina landleið Bolvíkinga. Tvívegis varð umtalsvert hrun úr hlíðinni seinni partinn í ágúst, þótt vegfarendur slyppu þá eins og um helgina, þar sem svo vel vildi til í öllum tilvikum að enginn var á ferð þegar hrunið varð. Steinarnir sem féllu á veginn núna um helgina voru frá þrjú hunduð kílóum upp í hálft tonn og féllu úr mikilli hæð þannig að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum, ef þeir hefðu lent á bílum á veginum. Að sögn Einars Péturssonar bæjarstjóra hefur hann að undanförnu átt viðræður við Vegagmálastjóra og Veðurstofuna vegna þess hversu mikið hefur hrunið úr berginu á 700 til 800 metra kafla upp á síðkastið og á hann von á svörum frá Vegagerðinni við ýmsum tillögum fyrir fundinn í dag. Annars vegar þurfi að líta til framtíðarlausnar á þessum vanda og hins vegar að bregðast við bráðahættu. Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, verður á fundinum í dag. Hann segir að miðað við að þetta sé eini vegurinn sem sé á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, sem mörg hundruð bílar aki um daglega, sé ekki hægt að búa við óöryggið sem fylgi þessu grjóthruni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Erlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Holskefla í kortunum Innlent Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Innlent Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Sjá meira