Úttekt nefndar SÞ fagnað 25. ágúst 2005 00:01
Í úttekt á stöðu mannréttindamála hér á landi gerði nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám kynþáttamisréttis meðal annars athugasemd við niðurskurð til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Nefndin telur og æskilegt að stjórnvöld endurskoði ákvæði um 24 ára aldur sem skilyrði dvalarleyfis fyrir maka, hún bendir á að löggjöf skorti sem tryggir einstaklingum kærurétt á grundvelli einkaréttarmála ef þeir telja sig verða fyrir kynþáttamismunun og telur hættu á að brotið verði á réttindum verkamanna þar sem atvinnurekendur eru handhafar atvinnuleyfa fyrir þeirra hönd. "Mér líst mjög vel á skýrsluna," segir Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur Alþjóðahússins. "Tillögur þær sem settar eru fram í skýrslunni eru að miklum hluta atriði sem Alþjóðahúsið hefur líka bent á." Hún segir skýrsluna almennt jákvæða í garð aðstæðna hér þótt þar séu birtar athugasemdir og tillögur að úrbótum hér á landi. "Stjórnvöld fá þessa skýrslu og ég er sannfærð um að þau munu skoða hana gaumgæfilega." Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, tók undir þetta. "Við erum mjög ánægð með þessar athugasemdir því þær endurspegla flest það sem við höfum bent á að betur megi fara. Að sjálfsögðu fögnum við því einnig að nefndin skori á íslensk stjórnvöld að styrkja skrifstofuna á ný og vonumst til að þau taki athugasemdirnar til greina." Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáði sig ekki efnislega um athugasemdirnar en sagði í tölvupósti til blaðsins: "Allt verður þetta tekið til skoðunar eins og jafnan er gert, þegar ábendingar slíkra aðila berast. Þessi nefnd hefur sérþekkingu á kynþáttamisrétti og skiptir mestu, sem hún hefur um það efni að segja."
Fréttir Innlent Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira