Framleiða eðalvodka í Borgarnesi 24. ágúst 2005 00:01
Íslenskt eldfjallahraun og jarðhiti er nú notað til að framleiða vodka, í fyrsta sinn í sögunni. Vodkað er framleitt í Borgarnesi, en þetta er í fyrsta sinn sem vodka er eimað hérlendis. Hreina loftið og tæra vatnið í Borgarnesinu heillaði skoska fjölskyldufyrirtækið William Grant & sonum sem er einna þekktast fyrir viskíin Glenfiddich og Grant's. Eimirinn, sem var smíðaður í Skotlandi, var fluttur til landsins í byrjun árs og er nú kominn í notkun. Lögunin á eiminum er vanalega ætluð í ginframleiðslu en þessi eimir er sá eini í heiminum, svona í laginu, sem framleiðir vodka og segja framleiðendur að það gefi drykknum léttan ferskju- og apríkósukeim. Nick Woodward, sölustjóri hjá William Grant og sonum, segir að á Íslandi sé hreint vatn og loft og að eimirinn sjálfur sé sérhannaður fyrir vokdaframleiðslu. Þessir þættir og hið frábæra fólk sem vinni í verksmiðjunni geri það að verkum mjög hentug sé að framleiða vodkann hér á landi. Vodkað ber nafnið Reyka og er svokallað gæðavodka. Íslenskt hraun er notað í vinnsluferlinu en það á að koma í veg fyrir óhreinindi í vökvanum sem tappað er á flöskurnar. Gæði hráefnisins og vinnsluferlið gerir það að verkum að vodkinn verður í dýrari kantinum. Nýi drykkurinn kemur á markað í haust hér á landi, í Bandaríkjunum og á Bretlandi og það á greinilega ekki að fara fram hjá neinum hvaðan drykkurinn kemur því flaskan er merkt í bak og fyrir með teikningum af íslenskum kennileitum. Teikningar af Geysi, Heklu og lundanum prýða flöskurnar, einkenni sem íslensk auglýsingastofa aðstoðaði við að velja. Svo á eftir að koma í ljós hvort íslenski vodkinn veki svipaða athygli og íslenska vatnið.
Fréttir Innlent Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira