Fasteignasali hafi blekkt seljanda 24. ágúst 2005 00:01
Fasteignasali í Reykjavík misnotaði aðstöðu sína þegar hann seldi syni sínum íbúð og blekkti þar með seljandann sem og aðra áhugasama kaupendur, að mati lögfræðings Húseigendafélagsins. Þetta er grófasta brot sinnar tegundar sem komið hefur inn á borð Húseigendafélagsins og hefur það verið kært til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. Fyrr í mánuðinum tók fasteignasala í Reykjavík að sér að selja íbúð í Hlíðunum fyrir eldri konu. Par gerði tilboð í eignina og á sama tíma lagði sonur fasteignasalans einnig fram kauptilboð. Parið heldur því fram að eiganda íbúðarinnar hafi verið tjáð að hún gæti ekki gert báðum aðilum gagntilboð og hafi verið beitt þrýstingi til að gera syni fasteignasalans tilboð, en sá eignaðist íbúðina í kjölfarið. Aðspurð hvort ekki geti verið að sonur fasteignasalans hafi verið með besta tilboðið segir Hrund Kristinsdóttir, lögfræðingur Húseigendafélagsins, að það sé rétt, eins og tilsvör sölustjóra fasteignasölunnar hafi verið, að börn fasteignasala þurfi líka að geta keypt sér fasteign. Það verði hins vegar að vera alveg klárt að þegar einhverjir sem hafa náin tengsl við fasteignasala sýni eign áhuga beri fasteignasalanum skýlaus skylda til að vísa viðkomandi eign til sölumeðferðar hjá öðrum fasteignasala og gera þar tilboð. Ásett verð eignarinnar var 22,9 milljónir. Sonur fasteignasalans fékk hana á 22,2 milljónir, lagði fram tilboð sem var 700 þúsund krónum hærra en það sem parið bauð. Hrund segir það engu skipta hvort seljandi hafi fengið sanngjarnt verð eða ekki. Fólk verði að trúa því þegar það komi inn til fasteignasala, sem gæti mikilla trúnaðarstarfa fyrir fólk, að það sitji við sama borð og aðrir sem séu að gera tilboð í sömu eign. Hrund er ekki í nokkrum vafa um það að fasteignasalinn hafi framið alvarlegt lögbrot. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér fangelsisvist og sektargreiðslu auk þess sem hann missir starfsleyfi. Hrund segir enn fremur að þetta sé grófasta mál sem Húseigendafélagið hafi fengið inn á borð til sín af þessum toga. Því má bæta við að annar eigandi fasteignasölunnar var fyrr á árinu dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt, skjalafals og umboðssvik. Hann er lögmaður og var framkvæmdastjóri Félags fasteignasala um árabil og er jafnframt eiginmaður umrædds fasteignasala.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira