Björn bestur í hrútaþukli 24. ágúst 2005 00:01 "
Þetta var óvænt," segir Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli um sigurinn á sunnudag. Dómnefndin, sem skipuð var þremur þrautreyndum sauðfjárræktarráðunautum, var sammála um að Björn hefði staðið sig best í að dæma hrúta út frá þeim stöðlum sem um slík fræði gilda, þótt mjótt hefði verið á munum. Björn segist ekki hafa hugsað mikið um úrslitin á meðan á móti stóð en auðvitað hafi verið gaman að vinna. Jón Jónsson, Strandamaður og sagnfræðingur, var ánægður með mótshaldið. "Þetta gekk ljómandi vel og keppnin var feikihörð," segir hann. Hátt í 300 manns fylgdust með mótinu en 27 kepptu í flokki hinna vönu. Keppendur komu víða að, allt frá Skagafirði í norðri að Skálholti í suðri, en flestir voru úr nærsveitum Strandanna. Björn sigurvegari er kjötmatsmaður hjá Sölufélagi Austur-Húnvetninga og segir Matthías Lýðsson bóndi á Húsavík, sem kom að mótshaldinu, að ekki spilli fyrir að búa yfir mikilli reynslu á því sviði. Björn heldur nokkrar kindur en vill ekki láta uppi um fjölda þeirra. "Þetta er innan skynsemismarka," segir hann og viðurkennir um leið að aðalverðlaunin, 15 skammtar af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands, komi að góðum notum. Rebekka Eiríksdóttir frá Stað vann í flokki óvanra en hún bar sigurorð af móðursystur sinni Dagrúnu Magnúsdóttur sem hafnaði í öðru sæti. Rebekka var að vonum sæl með sigurinn en segir það ekki hafa verið sér sérstakt kappsmál að vinna frænku sína. Hún og maður hennar halda sex hundruð fjár á Stað og eru því ýmsum hnútum kunnug þegar kemur að sauðfé þótt ekki teljist Rebekka vön í hrútaþukli. Strandamenn voru staðráðnir í að standa sig betur í ár en í fyrra þegar vel flest verðlaun fóru í Húnavatnssýslurnar. Það gekk eftir og skiptu þrír heimamenn með sér þriðju verðlaununum í flokki vanra, auk þess sem önnur og þriðju verðlaun í flokki óvanra féllu í skaut Strandamanna. Glæsileg verðlaun voru í boði; sokkar, vettlingar, teppi, prjónabækur, handverk, rækjur og gisting auk áðurnefnds sæðis sem kostar sitt eins og bændur vita.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira