Meiri forvarnir og kynfræðslu 23. ágúst 2005 00:01
Miklu fleiri íslenskar unglingsstúlkur verða þungaðar heldur en norrænar kynsystur þeirra. Ástæðan er ekki meira lauslæti, heldur skortur á fræðslu og þjónustu. Allt að 80% þungana unglingsstúlkna á aldrinum 15-19 ára eru ekki ráðgerðar. Með þungunum er bæði átt við fædd börn og fóstureyðingar. Á síðustu tæpum þremur áratugum hefur tíðni þunganna þessa aldurshóps lækkað og fóstureyðingum hjá fjölgað. Sóley Bender, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, segir misjafnt hvort fólk telji þunganir unglingsstúlkna vandamál en samkvæmt rannsóknum eru ungar mæður oft í meiri vanda og eiga jafnvel við frekari sjúkdóma að stríða en þær sem eldri eru. Sóley segir að oft sé litið á þunganir unglingsstúlkna sem vandamál stúlknanna en hún segir að vandamálið sé í stærra samhengi. Sóley segir ábyrgðina einnig liggja hjá fleirum en stúlkunum, til dæmis hjá samfélaginu í sambandi við forvarnir og hjá foreldrum og þeim sem stúlkurnar hafa samband við. Þetta þurfi að skoða og hafa í huga þegar hugsað er um hvernig stúlkurnar geti tekið ábyrga afstöðu til kynlífs. Hún sagði ástæðu fyrir því að þunganatíðni er hærri hér á landi má að hluta til rekja til þess að hér var farið seinna í gang með þjónustu fyrir ungt fólk á þessu sviði heldur en t.d. í Svíþjóð. Hér á landi opnaði fyrst sérhæfð móttaka fyrir ungt fólk árið 1999 og í mörgum tilfellum er hún einungis opin takmarkaðan tíma í viku. Sóley segir að bæta þurfi þessa þjónustu hér á landi til að minnka tíðni þungana unglingstúlkna en tíðnin er hæst hér á árunum 1976-2002 sé miðað við Danmörk, Svíþjóð, Noreg og Finnland.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Sjá meira