Óttast um framtíð líknardeildar 22. ágúst 2005 00:01
Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar Kópavogs hefur áhyggjur af breytingum í í bæjarhlutanum sem Kópavogsbær ætlar að ráðast í. Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn verður í Kársnesskóla klukkan átta í kvöld, stendur til að ræða sérstaklega skipulagsmál á Kópavogstúni og í Vesturbæ Kópavogs. Stjórn íbúasamtakanna segir fyrirhugað er að fjölga íbúum í Vesturbænum um 3.000 manns og leggja af stóran hluta atvinnustarfsemi á Kársnesinu og harmar hversu litlar umræður hafi orðið um fyrirætlanir bæjarins. Pétur Eysteinsson, formaður íbúasamtakann, segir áherslu verða lagða á að fá framlengdan umsagnarfrest fram yfir fyrirhugað íbúaþing í bænum í haust. "Þannig geta íbúarnir fengið að tjá sig um þetta á eðlilegan hátt," segir hann og telur auglýsingatíma frá seinni hluta júlí og fram í seinni hluta þessa mánaðar ekki vera nægan. Frestur til að skila inn athugasemdum vegna skipulagsins rennur út á morgun. "Svona stórt mál þar sem gjörbreytt er öllum umferðarstefnum um bæinn og fjarlægð jafnmikil starfsemi og er hjá Landspítalanum þarna niður frá og nýbúið að ákveða bryggjuhverfi kallar eiginlega á að fólk fái að ræða og melta þessa hluti betur. Það er frumkrafan að meiri tími fáist til að ræða hlutina." Pétur segir marga uggandi um framtíð líknardeildar Landspítalans og telur skrítið að bærinn hafi forystu um flutning þeirrar starfsemi frá Kópavogstúni. Gunnsteinn Sigurðsson, formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, vísar á bug gagnrýni íbúasamtakanna og segir auglýsingaferli vegna skipulagsins samkvæmt bæði lögum og venjum. "Til viðbótar var svo skipulag við Kópavogstúni tekið til sérstakrar kynningar fyrir rúmu ári síðan, áður en það var fullunnið. Við höfum farið þá leið að funda með íbúum áður en breytingar eru auglýstar formlega," segir hann og telur vel hafa verið staðið að kynningu hugmynda að skipulagsbreytingum. "Það má alltaf deila um alla hluti en okkar markmið hefur verið að halda íbúunum vel upplýstum." Þá segir Gunnsteinn skipulagshugmyndina á Kópavogstúni gera ráð fyrir að mörg húsanna sem þar eru fyrir geti staðið áfram. "Það er ekkert verið að hrekja Landspítalann í burtu."
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira