Lóan komin og farin 29. júlí 2005 00:01
Lóan er komin, búin að kveða burt snjóinn, farin aftur - og hvað þá? Hér er um að ræða sandlóuna Signýju sem kom hingað í vor, verpti við flugvöllinn í Holti í Önundarfirði, ól upp unga sína og tók að því búnu flugið til Frakklands þar sem til hennar sást fyrir nokkrum dögum. Eftir hvíld þar heldur hún svo væntanlega til Vestur-Afríku þar sem hún mun eyða vetrinum í sól og sumaryl. Upphaflega merktu menn frá Náttúrustofu Vestfjarða sandlóuna við Holtsflugvöll árið 2003 með svonefndu litamerki og gáfu henni nafnið Signý. Eftir það fréttist ekkert af henni í útlöndum en hún skilaði sér aftur í Önundarfjörðinn í fyrra, verpti þar og kom nokkrum ungum á legg með maka sínum. Þennan leik endurtók hún í vor og kom fjórum ungum á legg, eða væng, með aðstoð sama makans og í fyrra. Nokkuð er síðan hún sást þar síðast en þá fréttist af henni í París og er þetta í fyrst skipti sem litmerkt sandlóa héðan sést erlendis. Sandlóan er náskyld heiðlóunni, þeirri sem kveður burt snjóinn, en fer heldur fyrr til vetrarstöðva í útlöndum en heiðlóan. Heiðlóan er þó líka farin að tygja sig til brottfarar sem sést af því að hún er farin að hópa sig og æfa langflug.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira