Innlent

22 sækja um stöðu útvarpsstjóra

Umsóknarfrestur um embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins rann út í dag. Menntamálaráðuneytinu hafa borist tuttugu og tvær umsóknir um embættið en ekki er útilokað að fleiri umsóknir eigi eftir að berast í pósti. Umsækjendurnir eru: Adolf Petersen Andri Júlíusson Atli Þór Fanndal Árni Matthíasson Ása Richardsdóttir B. Davíð Husby Birgir Guðmundsson Bjarki Sveinbjörnsson Bjarni Guðmundsson Börkur Gunnarsson Elín Hirst Gísli Þór Gunnarsson Gústaf Níelsson Jón Ásgeir Sigurðsson Lárus Guðmundsson Óli H. Þórðarson Páll Magnússon Runólfur Ágústsson Sigrún Stefánsdóttir Sigurjón Kjartansson Tryggvi Gíslason Þorgils Björgvinsson Menntamálaráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. september 2005. Athygli vekur að ýmsir sem orðaðir höfðu verið við embættið eru ekki meðal umsækjenda, til að mynda Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs RÚV, Þorsteinn Pálsson sendiherra og Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×