Innlent

Piltur missti meðvitund

Tólf ára piltur missti meðvitund þegar hann féll út af trampolíni í Keflavík í gærkvöldi og féll á höfuðið til jarðar. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans þar sem hann komst til meðvitundar en dvelur þar enn til eftirlits. Talið er að hann hafi aðeins hlotið heilahristing. Öryggisnet er umhverfis trampolínið en hann féll út um opið á því þar sem gengið er inn á trampólínið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×