Enginn byggir á öryggissvæðinu 20. júlí 2005 00:01
Samgönguráðherra segir ljóst að enginn byggi á öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar. Fyrirhugað byggingasvæði Háskólans í Reykjavík nær inn fyrir öryggisgirðingar Reykjavíkurflugvallar og upp að flughlaði björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar. Ekkert samráð var haft við flugmálayfirvöld um byggingaráformin. Borgaryfirvöld hafa kynnt byggingarreit Háskólans í Reykjavík en þegar grannt er skoðað kemur í ljós að hann nær að öryggissvæðum flugbrauta og þyrluflughlaði Landhelgisgæslunnar. Þegar öryggisnefnd íslenskra atvinnuflugmanna leitaði til Flugmálastjórnar kom í ljós að ekkert samráð hafði verið haft við flugmálayfirvöld um byggingaráformin né áhrif þess á flugöryggi. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segist hafa haldið sig til hlés í umræðunni og beðið þess að borgaryfirvöld hefðu frumkvæði í málinu. Þaðan hefði hins vegar ekkert heyrst. Honum finnst það furðulegt og segir það hafa komið sér í opna skjöldu að gert hefði verið ráð fyrir byggingum á þessu svæði. „Þetta er auðvitað algerlega ómögulegt,“ segir Sturla. Sturla segir að ekki komi til greina að byggja innan öryggissvæðisins og það hafi verið gert ráð fyrir samráði við samgönguyfirvöld um byggingar í næsta nágrenni í samkomulagi hans og borgarstjóra vegna Samgöngumiðstöðvar á svæðinu. Það fylgi enda mikill hávaði flugrekstrinum og erfitt að ímynda sér aðra starfsemi í næsta nágrenni. Hann segir það hafa verið tiltekið sérstaklega í samkomulaginu að haft yrði samráð um málið. Sturla ítrekar að það sé alveg ljóst að innan öryggisgirðinga verði ekkert byggt.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira