Innlent

Stela dósum frá börnum

Tveir óprúttnir náungar í Sandgerði hafa undanfarið rænt flöskum og dósum úr söfnunargámi íþróttafélagsins Reynis sem stendur fyrir utan félagsheimili þeirra í Sandgerði. Á vef Víkurfrétta kemur fram að sjónarvottar hafi séð tvo menn innan við tvítugt á hvítum bíl taka flöskur og dósir úr gámnum. Daginn eftir sást til mannanna selja dósirnar í Kefalvík. Dósasöfnunin er þáttur í fjáröflun á barnastarfi félagsins og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um málið hvattir til að hafa samband við Lögregluna í Keflavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×