Fordæmdi hjónabönd samkynhneigðra 7. júní 2005 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra eru gervihjónabönd, fóstureyðingar á að banna og takmarkanir skulu vera á frjósemisaðgerðum. Þannig hljóma skilaboð páfa til heimsbyggðarinnar. Á trúarráðstefnu í Róm í gær sá páfi ástæðu til að margítrekað skilning sinn á hjónabandi sem heilagrar sameiningu karls og konu. Hann sagði að hin margvíslegu form sundrungar hjónabandsins nú á dögum, eins og frjáls sambönd, reynsluhjónabönd og gervihjónabönd fólks af sama kyni lýstu stjórnleysi sem ranglega hefði verið talið hið sanna frelsi mannsins. Slíkt sýndarfrelsi byggðist á lágkúruvæðingu líkamans sem óhjákvæmilega leiddi af sér lágkúruvæðingu mannsins. Þetta viðhorf kemur ekki á óvart, en í kardínálatíð páfa gaf hann út leiðbeiningar fyrir kaþólska stjórnmálamenn sem áttu að beita sér gegn lagabreytingum sem heimuluðu samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Á þeim tíma var hann einnig öflugur baráttumaður gegn fóstureyðingum. Næsta sunnudag ganga Ítalir til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagabreytingu sem meðal annars felur í sér að fóstur njóti ekki lengur sömu réttinda og fædd börn. Þá verður einnig kosið um hvort fella eigi úr gildi lagaákvæði sem takmarka frjósemisaðgerðir. Páfa virðist því ekki hafa þótt vanþörf á að koma þeim skilaboðum á framfæri að slíkt væri ótækt og í því fælist ógn við hefðbundnar hugmyndir um fjölskyldu og lífið sjálft.
Erlent Fréttir Mest lesið Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Innlent Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Fleiri fréttir Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Sjá meira