Erlent

Norðmenn fagna sambandsslitum

Norðmenn fagna því í dag, 7. júní, að nákvæmlega hundrað ár eru liðin frá því norska Stórþingið samþykkti formlega sambandsslitin við Svíþjóð. Mikið er um hátíðarhöld í Osló, höfuðborg Noregs, í tilefni af tímamótunum og fara meðal annars fram stórtónleikar helstu hljómsveita og listamanna landsins á torginu fyrir framan ráðhús borgarinnar. Haraldur Noregskonungur kom fram opinberalega í dag í fyrsta skipti í nokkra mánuði en hann hefur verið í veikindaleyfi að undanförnu og hefur Hákon krónprins leyst hann af hólmi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×