Tryggvi með þrennu 22. maí 2005 00:01 "
Tryggvi er framlínumaður og það er hans hlutverk að skora mörk. Á meðan hann gerir það er ég sáttur," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH við Fréttablaðið og setti þannig afrek Tryggva Guðmundssonar í mjög einfalt samhengi. "Mörkin eða markatalan skiptir mig engu máli. Við stefndum að því að fá sex stig frá Suðurnesjunum í þessum tveimur fyrstu umferðum. Það gekk eftir og ég get ekki annað en verið sáttur við það," bætti Ólafur við.Það tók lærisveina Ólafs nokkurn tíma að komast í gang í Grindavík í gær. Liðið spilaði undan miklum strekkingsvindi í fyrri hálfleiknum í gær og réðu illa við það framan af leik. Heimamenn áttu í fullu tré við Íslandsmeistara þrátt fyrir verið með vængbrotið lið með þrjá fastamenn frá vegna meiðsla. Sinisa Kekic var reyndar kominn aftur í öftustu vörn eftir að hafa misst af fyrsta leiknum gegn Val og gefur nærvera hans leik Grindavíkur ákveðið öryggi.Það var ekki fyrr en Tryggvi hafði skorað fyrsta markið sem að FH-ingar fóru fyrst að spila sinn leik. Þeir náðu öllum tökum á vellinum og rétt fyrir hálfleik bætti Allan Borgvardt við öðru marki og gerði hann það með glæsilegri hælspyrnu eftir hornspyrnu. Milan Jankovic gerði rétt með því að færa Kekic í fremstu víglínu í síðari hálfleik enda hafði liðið engu að tapa. Kekic átti eftir að reynast sóknarleik liðsins mjög vel og sóttu Grindvíkingar hart að marki gestanna framan af síðari hálfleik. En brotthvarf Kekic úr vörninni átti eftir að vega þungt. Án hans fór allt jafnvægi úr vörninni og eftir að Tryggvi hafði bætti við þriðja markinu úr fyrstu alvöru sókn FH í síðari hálfleik datt allur botn úr leik Grindavíkur og þeir hreinlega gáfust upp. FH-ingar gengu á lagið og bættum við tveimur mörkum áður en yfir leik en Ian Paul McShane náði að skora eitt sárabótarmark fyrir heimamenn fimm mínútum fyrir leikslok. "Þetta er spurning um heppni. Það féll allt þeirra megin í dag og það átti eftir að skipta miklu," sagði Óli Stefán Flóventsson, leikmaður Grindavíkur við Fréttablaðið í leikslok. Hlutskipti Ólafs og félaga hans er ekki öfundsvert - liðið er neðst með markatöluna 1-8 og þarf sannarlega að hysja upp um sig buxurnar ef leiðin á ekki að liggja beint niður í 1. deild að ári." Við verðum bara að þjappa okkur saman og hugsa um næsta leik. Þetta er erfitt en andinn í liðinu er fínn þrátt fyrir allt mótlætið. Við vitum alveg nákvæmlega hvað við getum en við verðum að koma þessu inn á völlinn. Ég hef fulla trú á að það gerist fljótlega," sagði Ólafur jafnframt. Öðruvísi horfir við hjá FH-ingum. Þeir eru á toppnum með átta mörk skoruð í tveimur leikjum þrátt fyrir að hafa spilað töluvert undir getu og ljóst að liðið er gríðarlega sterkt. Lið sem getur leyft sér að skilja menn á borð við Ármann Smára Björnsson og Jónas Grana Garðarsson utan hóps, eins og raunin var í gær, er líklegt íslandsmeistaraefni og með Tryggva og Borgvardt í stuði eins og í gær eru að fá lið, ef nokkur, sem hafa burði á að stoppa FH.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Sjá meira