Skattayfirvöld hætti ofsóknum 25. apríl 2005 00:01 MYND/AP
Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði Vladímír Pútín í ávarpi til þjóðarinnar í gær. Hann skipaði einnig skattayfirvöldum að hætta ofsóknum á hendur stórfyrirtækjum. Það vakti athygli að Pútín skipaði skattayfirvöldum að hætta að herja á stórfyrirtæki í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær. Hingað til hefur verið litið svo á að herferðir skattayfirvalda væru ekki síst undan rifjum Pútíns runnar og hefur verið bent á olíurisann Yukos því til sönnunar. Stjórnendur þess fyrirtækis segja meginástæðu skattarannsóknar vera þá að þeir hafi blandað sér í stjórnmál og verið þar andstæðingar Pútíns. Herferðir gegn rússneskum auðmönnum eru sagðar hafa valdið því að erlendir fjárfestar þora ekki að leggja fjármuni í fyrirtæki og uppbyggingu í Rússlandi og það hentar Pútín ekki heldur. Því lýsti hann þeirri skoðun sinni að Rússar ættu nú að hætta að senda peningana sína til útlanda til að komast hjá því að greiða skatt, þeir þyrftu ekki að óttast að þurfa að borga meira en þrettán prósenta flatan skatt. Pútín ræddi einnig þróun lýðræðis í Rússlandi og svaraði þannig meðal annars gagnrýni Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún gagnrýndi nýlega þróunina í Rússlandi en Pútín þykir í vaxandi mæli minna á valdamikla ráðamenn Sovétríkjanna fyrr á dögum. Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði hann í gær, og að það myndi verða innan ramma laganna. Átök þjóðernishópa, trúarhópa eða annarra yrði ekki til þess að hraða framvindunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira