Moska sprengd og þyrlu grandað 22. apríl 2005 00:01
Bílsprengja sprakk við mosku sjía-múslima á meðan föstudagsbænir stóðu yfir í Bagdad í gær, með þeim afleiðingum að átta manns féllu í valinn og tuttugu særðust, að sögn lögreglu. Sprengingin varð um sama leyti og tveir hópar uppreisnarmanna eignuðu sér ábyrgð á því að hafa skotið niður þyrlu sem ellefu óbreyttir borgarar voru um borð í. Annar hópanna sendi frá sér myndbandsupptöku sem fullyrt var að sýndi liðsmenn hans skjóta eina manninn sem var með lífsmarki í þyrluflakinu. Þyrlan var rússnesk að gerð, áhöfnin búlgörsk en farþegarnir bandarískir. Þá var í gær einnig birt myndbandsupptaka á Al-Jazzeera-sjónvarpsstöðinni sem sagt var að sýndi þrjá rúmenska fréttamenn sem uppreisnarmenn námu á brott 28. mars. Ásamt upptökunni var flutt yfirlýsing frá gíslatökumönnunum þess efnis, að yrðu rúmensku hermennirnir sem eru í Írak ekki kallaðir heim innan fjögurra daga yrðu gíslarnir teknir af lífi. Bænahús sjía-múslima hafa að undanförnu ítrekað orðið skotmark skæruliða úr röðum súnnía. Nærri 100 manns fórust í sjálfsmorðssprengjuárásum á trúarsamkomur sjía í febrúar síðastliðnum. Þá féll bandarískur hermaður er sprengja sprakk við vegbrún í bænum Tal Afar í Norður-Írak. Árásir gærdagsins marka nýtt hámark mannskæðra ofbeldisverka frá því í kring um þingkosningarnar 30. janúar síðastliðinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira