Benedikt XVI er nýr páfi 19. apríl 2005 00:01
Þýski kardinálinn Joseph Ratzinger var síðdegis í gær kjörinn nýr páfi kaþólsku kirkjunnar. Ekki er búist við að hinn nýi páfi muni víkja í veigamiklum atriðum frá þeirri stefnu sem forveri hans markaði enda er hann bæði roskinn og íhaldssamur. Svartur reykur steig tvívegis upp um skorstein Sixtínsku kapellunnar í gær og því bjuggust fáir við að kardinálarnir 115 næðu samkomulagi svo fljótt sem raun bar vitni. Þegar hvíti reykurinn sást og kirkjuklukkurnar á Péturstorginu glumdu um sexleytið að staðartíma varð hins vegar ljóst að nýr páfi hefði verið valinn. Tugþúsundir manna sem staddar voru á torginu fögnuðu ákaft og víða um heim glöddust kaþólikkar. Skömmu eftir að chileskur kardináli hafði flutt lýðnum orðin "habemus papam", eða "við höfum eignast páfa", kom Ratzinger sjálfur út á svalir Péturskirkjunnar undir nafninu Benedikt XVI. Hann lýsti sjálfum sér sem einföldum, auðmjúkum verkamanni í víngarði Drottins en söng svo bæn. Kaþólikkar á Íslandi fögnuðu kjöri Ratzingers í gær og sagðist séra Jakob Rolland, prestur í kaþólska söfnuðinum í Reykjavík, vera afar ánægður með niðurstöðu kardinálanna. Jakob efast þó um að Benedikt XVI láti mikið að sér kveða á páfastóli. "Það fyrsta sem hann gerði var að tala um Jóhannes Pál hinn mikla þannig að hann vill vera í skugga hans og halda áfram á sömu braut." Kjör Ratzingers kom Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, ekki mjög á óvart. Hann reiknar með að Benedikt XVI verði íhaldssamur páfi og muni ekki færa kirkjudeildir heimsins nær hverri annarri. "Það sem hefur borið vitni um afturhald og afturför í samkirkjulegu starfi og jafnvel kólnun á milli kirkjudeildanna hefur verið skrifað á hans reikning."
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira