Gerðu árangurslaust áhlaup 17. apríl 2005 00:01
Hundruð írakskra og bandarískra hermanna gerðu í morgun áhlaup á bæ skammt frá Bagdad í von um að frelsa þar á annað hundrað gísla sem eru í haldi mannræningja. Hersveitirnar umkringdu í gærkvöldi bæinn Madaen, skammt frá Bagdad, og bjuggu sig undir áhlaupið. Í morgun var svo ráðist á hluta bæjarins og þar leitað bæði mannræningja og gísla. Hvorki fannst tengur né tetur af þeim en talsmenn herliðsins segja frekari aðgerða að vænta á næstunni. Embættismenn í Bagdad segja mannræningjana hafa allt að 150 manns í haldi sínu, þar á meðal börn og konur. Talsmenn lögreglu segja aftur á móti að gíslarnir gætu verið mun færri, jafnvel ekki fleiri en þrír. Í yfirlýsingu frá al-Qaida í Írak er því hins vegar haldið fram að ekki sé einn einasta gísl að finna í Madaen. Sagan sé uppspuni, til þess fallinn að réttlæta árás hersetuliðsins á bæinn og súnníta. Það munu vera súnnítar sem halda gíslunum og hóta að drepa þá hverfi ekki allir sjítar af svæðinu. Embættismenn í Bagdad segja að gíslarnir verði drepnir innan sólarhrings en það hefur ekki fengist staðfest. Þó að það sé á reiki hvort gíslar séu í raun og sann í haldi mannræningja í Madaen, og hversu margir þeir eru, óttast margir í Írak að málið sé til þess fallið að auka á spennuna á milli súnníta og sjíta, en þeir ásamt Kúrdum vinna að því að koma á starfhæfri ríkisstjórn í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira