Mesti eldsvoði í París í 20 ár 15. apríl 2005 00:01
Tuttugu fórust þegar hótel í miðborg Parísar brann nánast til grunna í morgun. Þetta er mesti eldur í borginni í tvo áratugi. Auk þeirra tuttugu sem týndu lífi eru meira en fimmtíu manns slasaðir, þar af nærri tuttugu lífshættulega. Meðal þeirra sem fórust eru sjö börn og óttast lögreglan að tala látinna geti hækkað. Staðfestu hefur verið að meðal fórnarlambanna var fólk frá Bandaríkjunum, Portúgal, Senegal, Fílabeinsströndinni, Túnis og Úkraínu. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi verið gestir á hótelinu en það er ekki meðal hótela sem íslenskar ferðaskrifstofur hafa boðið upp á. Hótelið er sagt hafa verið vinsælt meðal innflytjenda. 250 slökkviliðsmenn voru þegar sendir á vettvang og tókst þeim að slökkva eldinn á neðstu hæðum hússins um klukkan þrjú í nótt en voru langt fram eftir morgni að berjast við eldinn á efri hæðum Paris-Opera hótelsins, sex hæða hótels skammt frá stórversluninni Galeries Lafayette. Aðstæður á vettvangi voru grimmilegar, aðeins einn stigi var í hótelinu og þegar eldur kviknaði á neðri hæðunum áttu þeir sem sváfu ofar sér enga undankomuleið. Nokkrir gestanna köstuðu sér út um glugga hótelsins í nótt þegar þeir voru komnir í sjálfheldu vegna elds og reyks. Óttast er að nokkur fjöldi fólks hafi hreinlega troðist undir þegar aðrir reyndu að komast út. Alls er talið að 76 gestir hafi verið á hótelinu þegar eldurinn braust út. Ekki er vitað hvað olli honum en á þessu stigi málsins leikur ekki grunur á að kveikt hafi verið í.
Erlent Fréttir Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Sjá meira