Erlent

Ráðherrann lenti í lífshættu

Helen Clark, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, er illa blá og marin eftir að flugvél hennar lenti í svo mikilli ókyrrð að henni þurfti að nauðlenda. Hurð flugvélarinnar fauk upp í átta þúsund feta hæð og tveir lögreglumenn í fylgdarliði Clarks reyndu að halda dyrunum lokuðum á meðan flugmaðurinn brá á það ráð að stinga vélinni strax niður til nauðlendingar á nærliggjandi flugvelli. Clark var á ferð í sex sæta, tveggja hreyfla Piper Aztec vél. Flugmálayfirvöld á Nýja-Sjálandi rannsaka nú hvað olli því að dyr vélarinnar opnuðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×