Hvatti til að landtöku yrði hætt 12. apríl 2005 00:01
George Bush Bandaríkjaforseti snupraði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á fréttamannafundi í gær og olli undrun þegar hann hvatti til þess að landnámi á Vesturbakkanum yrði hætt. Fundur þeirra Sharons og Bush í gær var upphaflega ætlaður til stuðnings Sharon en hann á á brattann að sækja með fyrirætlaðan brottflutning frá Gasaströndinni. Fyrir fram var búist við því að Bush gerði landnám á Vesturbakkanum að umræðuefni á fundi þeirra en þegar hann bryddaði upp á því á fréttamannafundi kom það sumum fréttaskýrendum í opna skjöldi. Það þykir jafngilda hálfgerðum skömmum að Bush skuli með opinberum hætti hafa hvatt til þess að landnámi yrði hætt í takt við friðarvegvísinn en Sharon gaf lítið fyrir það. Hann sagðist almennt sammála Bush en að landnemabyggðir á Vesturbakkanum væru hluti af Ísraelsríki og yrðu það áfram. Ísraelsmenn fullyrða að þeir hafi fullan rétt til að stækka þessar landnemabyggðir. Fréttaskýrandi dagblaðsins Haaretz segir ljóst að ágreiningur sé fyrir hendi og að Bush hafi ekkert gert til að fela hann. Að sama skapi sé ljóst að Bush hafi stutt dyggilega við bakið á Ísraelsmönnum og Sharon fyrir um ári en finnist nú tímabært að jafna leikinn og styðja Palestínumenn líka. Í gær hrósaði Bush palestínskum stjórnvöldum fyrir að hafa bætt ástandið á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna. Í viðtölum við ísraelska fjölmiðla í dag hafa aðstoðar- og talsmenn Sharons gert sitt ýtrasta til að gera sem minnst úr ágreiningnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira