Tryggði sjálfum sér sigurinn 31. mars 2005 00:01
Þingkosningar voru haldnar í Zimbabwe í gær og fóru þær mun friðsamlegar fram en kosningarnar árið 2000. Fáir gera sér hins vegar grillur um að Robert Mugabe, forseti landsins, hafi staðið heiðarlega að framkvæmd þeirra. Kosið var um 120 þingsæti af 150 en Mugabe skipar sjálfur í þau þrjátíu sem eftir eru. Í síðustu kosningum fékk Lýðræðisfylking Morgan Tsvangirai 57 þingsæti en bróðurparturinn af þingmönnunum kom samt úr ZANU-flokki Mugabe. 5,8 milljónir voru á kjörskrá fyrir þessar kosningar og var kjörsókn í gærdag sæmileg. Best var hún í höfuðborginni Harare en í sveitahéruðum mættu fáir á kjörstað. Fjórðungur kjósenda varð frá að hverfa þar sem fólkið var ekki að finna á kjörskrá eða vantaði skilríki. 3,4 milljónum brottfluttra Zimbabwemanna var meinað að greiða atkvæði utan kjörfundar en flestir þeirra eru taldir stjórnarandstæðingar. Samt var lítið um óeirðir, ólíkt því sem gerðist fyrir fimm árum. "Ég held að við séum öll sammála um að þessar kosningar geti ekki talist á nokkurn hátt sanngjarnar eða heiðarlegar," sagði Tsvangirai þegar hann greiddi atkvæði í gær og virðast flestir óháðir stjórnmálaskýrendur vera á sama máli. Þannig er talið að 800.000 manns sem eru löngu dánir séu á kjörskrá og þeir styðja víst allir ZANU. Erlendir kosningaeftirlitsmenn eru sárafáir í landinu og þeir koma frá löndum hliðhollum Mugabe. Engum eftirlitsmönnum frá Evrópu eða Bandaríkjunum var hleypt inn í landið. Mugabe hefur meira að segja hótað því að fella niður matvælaaðstoð við þau héruð sem kjósa stjórnarandstöðuna. Mugabe sjálfur var glaður í bragði þegar hann kaus í gær og sagðist eingöngu greiða atkvæði til að gera sigur sinn ennþá stærri. Hann vísaði ásökunum um svindl á bug. Mugabe er sagður ætla að ná 2/3 hlutum þingsæta til að geta knúið fram stjórnarskrábreytingar. Lífskjör hafa snarversnað í Zimbabwe síðustu ár og er landið orðið mjög einangrað á alþjóðavettvangi vegna ógnarstjórnar Mugabe. Búist er við að úrslit kosninganna liggi fyrir á næstu dögum.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent