Sundurhlutað lík finnst í Svíþjóð 31. mars 2005 00:01
Plastpoki með líkamshlutum fannst í Stokkhólmi í gær og lögregla rannsakar málið sem morð. Aðstæður minna á margan hátt á morðið í Kaupmannahöfn um páskana. Plastpokinn lá úti á ísi lögðu vatni, nánast beint fyrir neðan Hilton-lúxushótelið í Slussen í Stokkhólmi. Svo virðist sem pokanum, sem var svartur og límdur saman með silfurlituðu límbandi, hafi verið kastað út á ísinn nýlega því hann var ekki frosinn fastur við yfirborðið. Í pokanum voru líkamshlutar af karlmanni sem hafði verið bútaður í sundur. Lögregla vinnur nú baki brotnu við að reyna að bera kennsl á þessa líkamshluta og hefur lítið viljað tjá sig, utan að í pokanum hafi ekki verið allir líkamshlutarnir og því sé verið að leita að afgangi líksins. Tæknideild lögreglunnar rannsakar meðal annars límbandið til að kanna hvort þar sé að finna fingraför eða leifar af þráðum úr fötum eða hugsanlega bílteppi sem gæti svarað því hvernig líkamshlutarnir voru fluttir á staðinn. Málið minnir mjög á svipað morð í Kaupmannahöfn og því hafa fjölmiðlar velt upp þeirri spurningu hvort um eftirhermumorð sé að ræða. Tveir karlmenn og ein kona eru eftirlýst af lögreglunni í Kaupmannahöfn í tengslum við morðið á leigubílstjóranum Torben Vagn Knudsen um páskana en sundurhlutað lík hans fannst á tveimur stöðum í Kaupmannahöfn. Lögreglan hefur nú fundið íbúð þar sem hún telur líklegt að leigubílstjórinn hafi verið myrtur og stendur nú yfir DNA-rannsókn á sýni sem þar fannst.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira