Heiftarlegar deilur á Íraksþingi 29. mars 2005 00:01
Upplausn er á írakska þinginu sem tekst ekki að ná samkomulagi um ríkisstjórn landsins. Heiftarlegar deilur settu mark sitt á þingfundi í dag en þetta er aðeins í annað sinn sem þingið kemur saman. Áður en yfir lauk var fréttamönnum sem fylgdust með hent út og þræturnar héldu áfram fyrir luktum dyrum. Skömmu síðar gekk Iyad Allawi forsætisráðherra út. Þrætueplið er hlutverk súnníta í ríkisstjórninni en þeir eiga afskaplega erfitt með að sætta sig við að ráða ekki lengur eins og á tímum Saddams Husseins. Sjítar og Kúrdar hafa þegar náð samkomulagi um skiptingu embætta forseta og forsætisráðherra sín á milli en Ghazi al-Yawar, sem nú er forseti landsins og súnníti, neitar að sætta sig við embætti forseta þingsins. Deilurnar hafa nú þegar leitt til þess að tafir hafa orðið á fjölmörgum verkefnum og jafnvel aukið á ringulreiðina í landinu. Þingmenn spurðu sig í dag hvernig þeir gætu útskýrt valdabaráttuna fyrir þeim kjósendum sem lögðu bókstaflega líf og limi í hættu til að fara á kjörstað og greiða atkvæði í kosningunum í janúar. Þegar og ef deilunum lýkur tekur við skipting annarra embætta en ekki hefur náðst samstaða um skiptingu ráðuneyta og annarra lykilembætta og því allt eins líklegt að deilurnar haldi áfram um hríð.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent