Hjálpargögn berast til Nias-eyju 29. mars 2005 00:01
Flugvélar með hjálpargögn eru komnar til Nias-eyja við Indónesíu en þar er talið að þúsund manns hið minnsta hafi farist í öflugum jarðskjálfta í gærdag. Skjálftinn var stærri en fyrst var talið en það var lán í óláni að þessi skjálfti varð á grunnsævi og því myndaðist ekki flóðbylgja. Yfirvöld á Indónesíu óttast að endanleg tala þeirra sem týndu lífi geti skipt þúsundum. Skjálftinn reyndist mun öflugri en skjálftamælar gáfu fyrst til kynna, eða 8,7 á Richter en ekki 8,2 eins og fyrst var talið. Nias-eyjaklasinn er nærri Súmötru og upptök skjálftans í gær voru nærri upptökum skjálftans sem olli gríðarlegri flóðbylgju annan dag jóla en í þetta skipti myndaðist engin flóðbylgja. Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir skjálftann hafa orðið á sprungu sem sé um 300-500 kílómetra löng en skjálftinn um jólin hafi verið á um 1200 kílómetra sprungu. Skjálftinn í gær sé um tíu sinnum minni en skjálftinn á annan dag jóla. Aðspurð af hverju flóðbylgja hafi ekki myndast eftir skjálftann í gær segir Steinunn að munurinn á skjálftunum tveimur sé sá að skjálftinn í gær hafi orðið á grunnsævi og því sé ekki sá massi fyrir hendi sem þurfi til að mynda flóðbylgju á sama hátt og gerðist á Indlandshafi fyrir um þremur mánuðum. Vatnsmassin sem liggi ofan á jörðinni og hreyfist upp sé svo lítill að ekki geti myndast jafnstór flóðbylgja og á opnu hafi þar sem massinn sé mikill. Steinunn segir enn fremur að skjálftinn hafi verið opnari við úthafinu þannig að sá vatnsmassi sem hugsanlega hafi farið af stað hafi sennilega týnst í hafinu. Skelfing greip um sig þegar fólk varð skjálftans vart í gærdag þó að hann yrði um hánótt að staðartíma. Tugir þúsunda flýðu í ofboði upp á land frá strandhéruðum og á Taílandi forðuðu ferðamenn sér í snatri frá strandhótelum. Yfirvöld þar, á Srí Lanka og Indlandi gáfu flóðbylgjuviðvaranir og skipuðu fólki upp á land í varúðarskyni. Áströlsk yfirvöld mældu örsmáar flóðbylgjur á Cocos-eyjum, sú fyrri var tíu sentímetrar og sú síðari 25. Hjálpargögn eru þegar á leið til Nias-eyja en vont veður og tjón sem varð á flugvellinum hefur þó hamlað hjálparaðgerðum. Þrjár flugvélar hafa þó þegar lent á eyjaklasanum og sjónarvottar segja að þar sé gríðarmikið tjón.
Erlent Fréttir Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent „Hamfarir og ekkert annað“ Innlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Erlent „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent Fleiri fréttir Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent