Erlent

Mótmæla tilnefningu Boltons

Fimmtíu og níu fyrrverandi bandarískir erindrekar hafa undirritað bréf þar sem skipun Johns Boltons sem sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum er mótmælt. Diplómatarnir mótmæla orðum Boltons þess efnis að Sameinuðu þjóðirnar skipti einungis máli þegar þær þjóni hagsmunum Bandaríkjanna og hvetja utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings til að hafna tilnefningu hans. Bolton þykir hafa sýnt samtökunum fyrirlitningu og vakti tilnefning hans undrun fyrir þremur vikum þegar frá henni var greint.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×