Gagnrýna Íslendinga vegna Fischers 28. mars 2005 00:01
Koma Bobby Fischer til Íslands hefur orðið ýmsum erlendum fjölmiðlum umfjöllunarefni nú yfir páskahelgina. Bandaríska stórblaðið The Washington Post birti á sunnudag leiðara þar sem Íslendingar eru skammaðir fyrir að ganga svo langt í greiðasemi sinni við þennan fræga - og alræmda - mann sem raun ber vitni með veitingu ríkisborgararéttarins. "Þetta er sorglegur dagur fyrir Ísland, sem leggur nafn sitt með virkum hætti við mann sem fyrir löngu hefur yfirgefið allt velsæmi," skrifar leiðarahöfundur Washington Post. Í leiðaranum er því lýst að Fischer sé hetja á Íslandi vegna ástar landsmanna á skáklistinni og þeirrar staðreyndar að hápunkt ferils síns upplifði Fischer í Reykjavík, er hann sigraði Boris Spasskí í heimsmeistaraeinvíginu árið 1972. "Íslendingar mega velja að muna þann hápunkt þaðan sem Fischer féll. En þing lýðræðisþjóðar ætti ekki að leiða hjá sér það hyldýpi sem Fischer hefur fallið í síðan dýrðardögum hans lauk." Vísar leiðarahöfundurinn þar einkum til hatursfullra ummæla Fischers um gyðinga. Að sögn blaðsins verðskuldaði Fischer sennilega frekar að fólk kenndi í brjósti um hann en hataðist, "en hann ætti sannarlega ekki að njóta heiðurs af hálfu löggjafarþings - ekki nema hinir nýju landar hans vilji að þjóðin skammist sín í hvert sinn sem þessi skákmaður opnar munninn." Breska blaðið The Guardian er annað þekkt stórblað sem fjallar um Fischer-málið í gær. Blaðamaður blaðsins lýsir eltingarleik sínum við Fischer og blaðamannafundinum á föstudaginn langa. Í greininni gerir höfundur góðlátlegt grín að íslenskum kollegum sínum. "Ég spyr um skák; rússneskir sjónvarpsfréttamenn spyrja um Kasparov; Íslendingarnir spyrja Fischer hvort honum líki síld." Hann lætur þess einnig getið að eitt íslensku blaðanna - og á þar við Fréttablaðið - hafi þegar kveðið upp úr um að Fischer sé næstfrægasti Íslendingurinn, á eftir Björk. "En ég þori að veðja að Björk kann ekki Caro-Kann-vörnina," skrifar blaðamaður Guardian og staðfestir þar með hve einlægur aðdáandi skáklistar Bobby Fischer hann er.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira