Segja fjara undan andspyrnu 28. mars 2005 00:01
Það fjarar undan andspyrnuhreyfingunni í Írak samkvæmt skýrslum leyniþjónusta í Miðausturlöndum sem telja þó að ofbeldi setji mark sitt á lífið í landinu næsta áratug. Andspyrnan hefur nú náð hámarki og það er tekið að halla undan fæti, segir í skýrslunum sem dagblaðið Guardian hefur komist yfir. Það segir að líklega haldi ofbeldisverk áfram um ókomna tíð en að krafturinn sé mjög farinn úr andspyrnunni eftir kosningarnar í janúar auk þess sem hermt er að viðræður við valdamenn meðal súnníta hafi skilað nokkrum árangri. Þær viðræður, sem farið hafa fram með mikilli leynd, eru ekki síst ætlaðar til þess að valda klofningi meðal ólíkra hópa andspyrnumanna og hryðjuverkamanna. Í skýrslum leyniþjónustanna er greint frá atvikum sem benda til þess að það hafi tekist. Leiðtogar al-Dulaimi ættflokksins, sem er andsnúinn hersetuliðinu, drápu nýlega hóp erlendra baráttumanna þar sem þeir áttu aðild að morðinu á ættingja sem starfaði fyrir hersetuliðið. Í síðustu viku réðst hópur vegfarenda og verslanaeigenda á þrjá hettuklædda menn sem skutu í kringum sig á gangandi fólk. Hettuklæddu mennirnir voru drepnir á staðnum. Í bænum Wihda töldu bæjarbúar að hópur skæruliða legði á ráðin um árás þar svo að gripið var í taumana og skæruliðarnir drepnir. Þrátt fyrir þetta telja höfundar leyniskýrslnanna að ofbeldisverk verði áfram vandamál í Írak að líkindum næsta áratug eða svo. Í morgun mátti sjá merki þess því þá fórust sjö þegar sjálfsvígsmaður ók bifreið upp að hópi sjíta sem voru að bæn og sprengdi sig í loft upp. Níu særðust.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Sjá meira