Margt býr í andlitinu 23. mars 2005 00:01
Andlitsfallið ræður miklu um hvernig við veljum okkur vini og maka á ómeðvitaðan hátt. Í það minnsta benda nýjar rannsóknir í þessa átt samkvæmt netútgáfu BBC. Svo virðist sem fólk treysti þeim betur sem hafa svipað andlitslag og það sjálft. Þegar kemur að kynferðislegri hrifningu snýst dæmið hins vegar við, við löðumst að fólki sem hefur ólíka andlitsdrætti og við sjálf. Vísindamenn segja ástæðuna einfalda. Svipað andlitsfall bendir til skyldleika og venjulega treystir fólk skyldmennum sínum betur en ókunnugum. Mannfólkið forðast á hinn bóginn að eðla sig með slíkum einstaklingum til að koma í veg fyrir mögulega úrkynjun. Rannsóknin var gerð af skoskum vísindamönnum en þeir sýndu 144 kanadískum stúdentum myndir af alls kyns fólki. Stúdentarnir vissu hins vegar ekki að búið var að breyta myndunum í tölvu svo að andlit fólksins líktust stúdentunum meira. Önnur nýleg bresk rannsókn sýnir að þorri kvenna kýs karlmenn með mjúka og allt að því kvenlega andlitsdrætti. Könnunin var gerð í Liverpool-háskóla. Nokkur hundruð stúdentar skoðuðu myndir af tölvugerðum andlitum. Í undirmeðvitundinni tengja konur mjúka menn við ástúð og stöðugleika og telja þá því áreiðanlegri uppalendur. Konur sem aftur á móti álíta sig mjög aðlaðandi vilja hins vegar frekar menn með sterkt andlitsfall þrátt fyrir innbyggða hættu á að þeir haldi fram hjá og yfirgefi ungviðið. Eðlisávísunin segir þeim að erfðamengi karlmannlegra manna sé afar gott og áhættunnar fyllilega virði. Þetta á ekki síst við þegar þær hafa egglos en á öðrum tímum tíðahringsins hallast þær aftur meira að mjúku mönnunum. Enn önnur rannsókn sem BBC segir frá sýnir að almennt telji karlar þær konur sem eru í fylgd manna með sterka andlitsdrætti vera meira aðlaðandi en þær sem eru í slagtogi með mjúku mönnunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira