Sjálfsmorðsárás í leikhúsi í Katar 20. mars 2005 00:01
Óttast er að hryðjuverkasamtökin al-Qaida hafi látið til skarar skríða í Katar í morgun. Sjálfsmorðsárásarmaður grandaði einum Breta með því að aka bíl hlöðnum sprengiefni inni í leikhús. Staðfest er að árásarmaðurinn var frá Egyptalandi og talið er að ætlunin hafi verið að granda vestrænu fólki því í leikhúsinu var verið að sýna leikritið Þrettánda nóttin eftir Shakespeare. Um hundrað manns voru í leikhúsinu, flestir útlendingar, og að auki er leikhúsið rétt hjá stórum enskumælandi skóla í Doha, höfuðborg Katars. Um sextán aðrir slösuðust í árásinni, nokkrir alvarlega. Menn beina sjónum sínum aðallega að al-Qaida enda eru aðeins tveir dagar síðan leiðtogi samtakanna í Sádi-Arabíu hvatti menn til að gera árásir á vestræn skotmörk og vestrænt fólk á Persaflóasvæðinu. Þetta er í fyrsta sinn sem sjálfsmorðsárás er gerð í Persaflóaríkinu Katar en stjórnstöð Bandaríkjahers er staðsett þar. Mikill ótti hefur gripið um sig meðal Vesturlandabúa á svæðinu og hefur nokkrum enskumælandi skólum verið lokað í kjölfarið.
Erlent Fréttir Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Sjá meira