Hatrammar deilur um líknardráp 19. mars 2005 00:01
Skoðanamunur Bandaríkjamanna á líknardrápi endurspeglast í hatrömmum deilum aðstandanda heilaskaddaðrar bandarískrar konu. Málið hefur vakið heimsathygli en deilurnar snúast um það hvort halda eigi lífi í konunni eða leyfa henni að deyja. Málið hefur velkst í bandaríska dómskerfinu í heil sjö ár. Almenningur í Bandaríkjunum fylgist vel með þessari deilu sem hefur ekki aðeins verið farið fram í dómsölum heldur líka í fjölmiðlum. Málið komst enn á ný í hámæli í gær þegar læknar í Flórída í Bandaríkjunum urðu við dómsúrskurði og fjarlægðu rör sem flytur næringu til konunnar. Búist er við því að hún muni deyja innan hálfs mánaðar verði ákvörðun dómstóla ekki umsnúið. Hún heitir Terri Schiavo og er fjörutíu og eins árs. Hún varð fyrir heilaskaða eftir hjartastopp í kjölfar átröskunarsjúkdóma og læknar merkja engin viðbrögð hjá henni. Foreldrar konunnar eru á öðru máli, þeir segjast hafa orðið vör við viðbrögð og heilastarfsemi og hafa barist fyrir því að henni sé haldið á lífi. Eiginmaður hennar, sem hefur stofnað fjölskyldu með annarri konu, segir hins vegar að hún hefði aldrei viljað láta halda sér á lífi í þessu ástandi og berst fyrir því að henni verði leyft að deyja. Búið er að áfrýja úrskurðinum og báðar deildir Bandaríkjaþings hafa reyndar lagst gegn þessari niðurstöðu dómstóla en dómarinn hvikar hvergi og segist ekki bregðast við þrýstingi stjórnmálamanna. Tvisvar áður hefur næringarrör Schiavo verið fjarlægt en í bæði skiptin hefur því verið komið fyrir aftur vegna baráttu foreldra hennar. Jafnvel er talið að Bush Bandaríkjaforseti muni blanda sér í málið nú því haft er eftir talsmanni hans að hann fylgist grannt með framvindu mála og sé þeirrar skoðunar að ef einhver vafi sé í hugum manna eigi tvímælalaust að láta lífið njóta vafans.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Sjá meira