Tölvuþrjótar reyna bankarán 17. mars 2005 00:01
Breska lögreglan kom upp um tilraun tölvuþrjóta til að stela andvirði mörg hundruð milljóna króna af reikningum japansks banka í Lundúnum, að því er greint var frá á fimmtudag. Aðferðin sem beitt var við þjófnaðartilraunina var að sögn sú, að þrjótarnir brutust inn í tölvukerfi bankans og gátu þannig safnað upplýsingum um bankareikninga með tilheyrandi aðgangs- og lykilorðum. Lögregla í Ísrael handtók á miðvikudag mann, í samstarfi við breska kollega sína, sem grunaður er um að hafa með þessum aðferðum reynt að ræna háum upphæðum af reikningum Sumitomo Mitsui-bankans. Lögregla í Lundúnum staðfesti að gerð hefði verið "misheppnuð þjófnaðartilraun" í fyrra í Lundúnaútibúi Sumitomo Mitsui, en vildi ekki gefa upp hve háar upphæðir hefði verið um að tefla né hvaða aðferðum var beitt. Talsmenn bankans staðfestu einnig að tilraun til þjófnaðar hefði verið gerð, en sögðu ekkert nánar um aðferðina. Í fréttatilkynningu ísraelsku lögreglunnar segir, að hinn handtekni - 32 ára gamall ísraelskur ríkisborgari - væri grunaður um að hafa reynt að "þvo" 20 milljónir evra, andvirði um 160 milljóna króna. Hátækniglæpadeild bresku lögreglunnar hóf rannsókn í október í fyrra, eftir að tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi Sumitomo-bankans í Lundúnum. Þeir reyndu að millifæra 219 milljónir evra, um 17,5 milljarða króna, af reikningum bankans á tíu reikninga í bönkum víðs vegar um heim, en handtekni Ísraelinn kvað vera skráður fyrir einum þessara reikninga. Samkvæmt heimildum breska blaðsins Financial Times reyndu þjófarnir að ræna 220 milljónum sterlingspunda, hátt í 25 milljörðum króna af reikningum japanska bankans. Að sögn blaðsins notuðu tölvuþrjótarnir laumuforrit sem gerði þeim kleift að fylgjast með öllu því sem sem notendur netbankaþjónustu bankans slógu inn á lyklaborðið hjá sér. Þannig gátu þeir komist yfir upplýsingar um reikningsnúmer, aðgangsorð og aðrar viðkvæmar upplýsingar.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira