Pólitískir andstæðingar undir grun 15. mars 2005 00:01
Reynt var að ráða Ibrahim Rugova, forseta Kosovo-héraðs, af dögum í morgun en árásin mistókst. Ekki er vitað hver var að verki en grunur beinist að pólitískum andstæðingum Rugova úr röðum fyrrverandi uppreisnarmanna. Rugova var í bíl á leið til fundar við Javier Solana, utanríkisstjóra Evrópusambandsins, þegar árásin var gerð. Sprengju hafði verið komið fyrir í ruslagámi og var sprengd með fjarstýringu í sömu andrá og Rugova fór hjá. Bíll hans er brynvarinn og því sakaði hann ekki. Haft er eftir háttsettum embættismanni hjá Atlantshafsbandalaginu að annaðhvort hafi árásarmennirnir verið nógu heimskir til að reyna slíka árás á brynvarin bíl eða, og það sem þykir vera líklegra, að þessi sprengja hafi aðeins verið nokkurs konar viðvörun. Verið sé að láta Rugova vita af því ef andstæðingar hans vildu þá gætu þeir ráðið hann af dögum. Rugova þakkaði guði fyrir að hafa sloppið aftur en í fyrra var handprengju kastað að heimili hans. Hann sagði að sér hefði nokkrum sinnum verið sýnt banatilræði en vildi ekki ræða það frekar en bætti við að því miður væru enn öfl sem vildu koma á upplausn í Kosovo. Fréttaskýrendur telja líklegt að þessi árás í morgun endurspegli þá valdabaráttu sem þegar er hafin í Kosovo í kjölfar þess að forsætisráðherra landsins, Ramush Haradinaj, gaf sig fram við stríðsglæpadómstólinn í Haag í síðustu viku. Deilur standa á milli andstæðra pólitískra fylkinga um hver eigi að taka við af Haradinaj og leiða landið í sjálfstæðisbaráttu sinni frá Serbíu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Sjá meira