Aðildarviðræðum slegið á frest 15. mars 2005 00:01
Allt benti til þess í gær, að Evrópusambandið ákveddi að slá því á frest að hefja aðildarviðræður við Króatíu. Til hafði staðið að viðræðurnar hæfust á morgun, fimmtudag, en vegna óánægju meðal ráðamanna ESB með meintan skort á því að króatísk stjórnvöld sýndu stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna tilhlýðilegan samstarfsvilja leit út fyrir að þeim yrði frestað. Utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna 25 taka ákvörðun um málið í dag. Málið snýst aðallega um fyrrverandi hershöfðingja í Króatíuher, Ante Gotovina að nafni, sem sætir ákæru fyrir meinta stríðsglæpi í borgarastríðinu í kjölfar upplausnar Júgóslavíu. Gagnrýnendur telja að króatískum stjórnvöldum væri í lófa lagið að hafa hendur í hári Gotovina og framselja hann, en hershöfðinginn hefur farið huldu höfði frá því ákæran var gefin út í febrúar í fyrra. Þessu neitar Króatíustjórn. Forsætisráðherrann Ivo Sanader staðhæfði í gær að Gotovina væri örugglega ekki lengur í Króatíu og því væri það ógerlegt fyrir króatísk stjórnvöld að koma honum í hendur dómstólsins í Haag.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira