Segja lögreglu hafa klúðrað málum 15. mars 2005 00:01
Fangauppreisn á Filippseyjum lauk í nótt með því að lögregla réðst til atlögu og felldi 22 uppreisnarseggi, þar á meðal þrjá háttsetta meðlimi Abu Sayaf hryðjuverkahópsins. Sérfræðingar telja að lögreglan hafi klúðrað málunum og segja að hefnd sé óumflýjanleg. Uppreisnin hófst í gærmorgun þegar nokkrir fangar réðust á fangaverði, myrtu þrjá þeirra og reyndu að flýja. Hópurinn laut forystu fanga úr Abu Sayaf hryðjuverkahópnum sem talið er að hafi tengsl við al-Qaida samtökin. Lögregla umkringdi fangelsið og í upphafi var reynt að semja við uppreisnarseggina, sem kröfðust þess að mál þeirra yrðu fljótlega tekin upp af dómstólum, öryggi þeirra yrði tryggt og að þeir fengju að koma skoðunum sínum á framfæri bæði við yfirvöld og fjölmiðla. Í nótt ákvað lögregla hins vegar að ráðast til atlögu eftir að fimmtán mínútna frestur, sem uppreisnarhópnum var gefinn til að gefast upp og afhenda vopn sín, rann út. Alls létust 22 fangar í lögregluárásinni, þar af þrír meðlimir Abu Sayaf. Þessi samtök berjast fyrir sjálfstæði Mindanao-héraðs í suðurhluta Filippseyja. Þetta eru fámenn samtök en hafa verið áberandi síðustu árin vegna sprengjuárása og sérstaklega rána á vestrænum ferðalöngum. Yfirvöld segja að forsvarsmenn Abu Sayaf hafi persónuleg tengsl við hryðjuverkaleiðtogana Osama bin Laden og Ramsi Youssef sem skiplagði fyrstu hryðjuverkaárásina á tvíburaturnana í New York. Hryðjuverkasérfræðingar telja að filippseyska lögreglan hafi ekki tekið rétt á þessari fangauppreisn og eigi eftir að súpa seyðið af því. Forystumenn Abu Sayaf voru líka fljótir að hóta blóðugum hefndarárásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira