Sport

Chelsea-sigur í fjarveru Mourinho

Jose Mourinho setti Eið Smára inn á í hálfleik en fram að þeim tíma hafði Chelsea gengið einkar brösulega að finna fæturna fyrir framan mark Liverpool. Liverpool fékk sannkallaða óskabyrjun þegar John Arne Riise kom þeim yfir eftir aðeins 43 sekúndna leik með góðu skoti innan teigs. Eftir markið lögðust leikmenn Liverpool í skotgrafirnar og vörðust gríðarlega skipulega. Chelsea hafði mikla yfirburði en komust lítt áleiðis gegn varnarmúr Liverpool þar sem Jerzey Dudek var auk þess í miklu stuði fyrir aftan. Mourinho breytti um leikskipulag í hálfleik og tók miðjumanninn Jiri Jarosik af velli fyrir Eið Smára. Sú skipting átti eftir að reynast gjöful því innkoma Eiðs hressti mjög upp á leik Chelsea og sóknarþunginn óx jafnt og þétt. Það þurfti samt sem áður sjálfsmark frá fyrirliða Liverpool til að brjóta ísinn fyrir Chelsea. Steven Gerrard skallaði boltann í eigið net eftir hættulitla aukaspyrnu Paulo Ferreira langt utan af velli og sló þetta mark leikmenn Liverpool algjörlega útaf laginu á meðan leikmenn Chelsea fengu aukin byr í seglin. Jose Mourinho var hinsvegar rekinn inn í klefa fyrir að ögra stuðningsmönnum Liverpool í fagnaðarlátum sínum og það var því undir stjórn aðstoðarþjálfarans Steve Clarke sem að Chelsea hélt í framlengingu. Þegar þangað var komið héldu yfirburðir þeirra bláklæddu áfram og það kom lítið á óvart þegar Didier Drogba náði forystunni eftir misskilning í vörn Liverpool. Skömmu síðar, eða á 112. mínútu, skoraði Mateja Kezman þriðja markið, einmitt eftir undirbúning Eiðs Smára, en Antonio Nunez hélt spennunni með því að minnka muninn aðeins mínútu síðar. Úthald Liverpool var hinsvegar á þrotum og náðu þeir aldrei að ógna marki Chelsea að neinu viti á lokamínútunum. Fyllilega sanngjarn sigur Chelsea því staðreynd og fyrsti titillinn af þeim mörgu sem Jose Mourinho og Eiður Smári Guðjohnsen hafa sagst ætla að vinna með félaginu, kominn í hús.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×