Chelsea-sigur í fjarveru Mourinho 27. febrúar 2005 00:01
Jose Mourinho setti Eið Smára inn á í hálfleik en fram að þeim tíma hafði Chelsea gengið einkar brösulega að finna fæturna fyrir framan mark Liverpool. Liverpool fékk sannkallaða óskabyrjun þegar John Arne Riise kom þeim yfir eftir aðeins 43 sekúndna leik með góðu skoti innan teigs. Eftir markið lögðust leikmenn Liverpool í skotgrafirnar og vörðust gríðarlega skipulega. Chelsea hafði mikla yfirburði en komust lítt áleiðis gegn varnarmúr Liverpool þar sem Jerzey Dudek var auk þess í miklu stuði fyrir aftan. Mourinho breytti um leikskipulag í hálfleik og tók miðjumanninn Jiri Jarosik af velli fyrir Eið Smára. Sú skipting átti eftir að reynast gjöful því innkoma Eiðs hressti mjög upp á leik Chelsea og sóknarþunginn óx jafnt og þétt. Það þurfti samt sem áður sjálfsmark frá fyrirliða Liverpool til að brjóta ísinn fyrir Chelsea. Steven Gerrard skallaði boltann í eigið net eftir hættulitla aukaspyrnu Paulo Ferreira langt utan af velli og sló þetta mark leikmenn Liverpool algjörlega útaf laginu á meðan leikmenn Chelsea fengu aukin byr í seglin. Jose Mourinho var hinsvegar rekinn inn í klefa fyrir að ögra stuðningsmönnum Liverpool í fagnaðarlátum sínum og það var því undir stjórn aðstoðarþjálfarans Steve Clarke sem að Chelsea hélt í framlengingu. Þegar þangað var komið héldu yfirburðir þeirra bláklæddu áfram og það kom lítið á óvart þegar Didier Drogba náði forystunni eftir misskilning í vörn Liverpool. Skömmu síðar, eða á 112. mínútu, skoraði Mateja Kezman þriðja markið, einmitt eftir undirbúning Eiðs Smára, en Antonio Nunez hélt spennunni með því að minnka muninn aðeins mínútu síðar. Úthald Liverpool var hinsvegar á þrotum og náðu þeir aldrei að ógna marki Chelsea að neinu viti á lokamínútunum. Fyllilega sanngjarn sigur Chelsea því staðreynd og fyrsti titillinn af þeim mörgu sem Jose Mourinho og Eiður Smári Guðjohnsen hafa sagst ætla að vinna með félaginu, kominn í hús.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Fleiri fréttir Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Sviss – Bosnía | Fyrsti sigur riðilsins í boði Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Þróttur R. - Víkingur R. | Reykjavíkurslagur í átta liða úrslitum Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Sjá meira