Sport

Tiger mættur aftur

Eftir afleita spilamennsku á síðasta ári stimplaði Tiger Woods sig inn í golfárið 2005 með glæsibrag þegar hann bar sigur úr bítum á atvinnumannamóti kylfinga á PGA-mótaröðinni, Buick-mótinu, sem var í beinni útsendingu á Sýn 2 í gærkvöld. Þoka gerði kylfingum lífið leitt en þrátt fyrir að vera nýstiginn upp úr flensu púttaði Woods af miklu öryggi og lék samtals á 16 höggum undir pari. Þetta var 41. titill Woods á ferlinum en fyrsti sigur hans í höggleik í 16 mánuði. Þó sigraði hann á móti í holukeppni í haust. Þrír kylfingar voru jafnir í 2. sæti, þremur höggum á eftir Woods, þeir Tom Lehman, Luke Donald og Charles Howell III.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×