Erlent

Enn á móti smokknum

Kaþólska kirkjan á Spáni hefur í engu breytt afstöðu sinni og er enn andvíg notkun smokksins. Þetta segja forystumenn kirkjunnar og gera lítið úr orðum Juan Antonio Martinez Camino, biskups og talsmanns samtaka spænskra biskupa, sem sagði á þriðjudag að smokkurinn ætti sér hlutverk í baráttunni gegn alnæmi. Skömmu eftir að biskupinn lét ummæli sín falla ítrekaði Vatíkanið andstöðu sína við notkun smokksins og fljótlega eftir það sendu samtök spænskra biskupa frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að notkun smokksins stríddi gegn siðferðislögmálum trúarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×