Erlent

Viðurkenna landamæri Ísraels

Forysta Hamas hefur í fyrsta sinn í sögu sinni dreift skjölum þar sem fram kemur að samtökin viðurkenni landamæri Ísraels frá árinu 1967 og tekið er undir markmið Fatah um stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis með Jerúsalem sem höfuðborg. Ísraelska dagblaðið Haaretz greindi frá því í gær að Hamas hefði að undanförnu unnið mikið starf til að komast að samkomulagi við Fatahhreyfingu Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, um stefnuna í samskiptum við Ísrael. Þar leggja þeir til að Hamas komi að forystusveit Palestínumanna við hlið Fatah. Í skjölunum, stefnuyfirlýsingu sem á enn eftir að staðfesta, segir annars vegar að vopnuð og pólitísk barátta Palestínumanna sé réttmæt. Hins vegar segir að bæta verði samskiptin við umheiminn, einkum við Vesturlönd, á siðferðislegum grundvelli sem tryggi réttindi Palestínumanna og lok átaka. Forysta Hamas gekk frá stefnuskjalinu að loknum fundi með Abbas þar sem hann sagðist ætla að beita palestínskum öryggissveitum til að koma í veg fyrir öll vígaferli. Síðan þá hafa þrjú þúsund lögreglumenn tekið sér stöðu á norðanverðu Gaza til að koma í veg fyrir árásir á Ísraela.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×