Erlent

Skutu tvo þrettán ára pilta

Ísraelskir hermenn skutu þrettán ára palestínskan dreng til bana eftir að hafa tekið hann í misgripum fyrir vígamann. Pilturinn var í hópi barna og unglinga á Vesturbakkanum sem gerðu hróp að hermönnunum, en þegar hann dró upp leikfangabyssu og beindi henni að þeim töldu þeir að um vígamann væri að ræða og skutu hann. Hann lést í sjúkrabíl á leið á sjúkrahús. Annar þrettán ára piltur lést einnig af völdum skotsára. Sá var á gangi með fjölskyldu sinni nærri Rafah-flóttamannabúðunum á Gaza þegar ísraelskir hermenn skutu á fjölskylduna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×